hummm
Ég er búin að vera í miklum vandræðum þessa daganna með sjálfan mig, hausinn á mér er á fullu, ég get ekki sofnað á kvöldin því ég get ekki hætt að hugsa.
Það sem er að angra mig þessa daganna er næsta ár... ég er að klára MMS næsta vor og veit ég að það verður ekki um vinnu að fá fyrir okkur hér á skerinu og neita ég að fara að vinna við e-d sem er ekki námstengt... er komin með nóg af því. Þess vegna er ég mikið að spá í að fara í skóla, hér heima eða úti og jafnvel ef það gengur ekki, fara þá bara út að vinna og læra tungumál.
En það sem kemur á móti því að fara út er helv** gengið! Þetta er ekki beint hentugur tími núna og er eiginlega bara frekar leiðinlegt að hugsa um það að kannski á maður bara ekki eftir að hafa efni á því að fara út.
Svo finnst mér leiðinlegast í heimi að leita af skólum, gera allar umsóknirnar. Mér finnst líka svo rosalega erfitt að vita hvar ég á að leita, hvaða skólar eru góðir....
Væri mest til í ef hægt væri að ráða manneskju í að gera pappírsvinnuna fyrir sig. Djöfull væri það næs :)
Það eru örugglega fleirri með sama vandamál og ég þessa daganna.
Svo er maður alltaf að heyra af fleirrum og fleirrum sem eru að missa vinnuna sína.
Þetta ástand er bara hræðilegt!



4 athugasemdir:
já þetta er ekki skemmtilegt ástand!
við erum einmitt á leiðinni út aftur næsta sumar, NO MATTER WHAT skilurðu... þó að við verðum með íslenska peninga í vasanum. Ég bara trúi ekki öðru en það verði aðeins farið að jafna sig!
ég segi bara spara eins og mófó, skella sér í nordjobb eða einhvern fjandann um sumarið og læra í útlöndum næsta haust!
já það er alls ekki slæm hugmynd - Nordjob! Já ég held að spara sé bara málið... ég bara trúi ekki öðru en að þetta verður e-d búið að skána næsta haust! vonandi!
Komdu bara aftur til Danmerkur! :-)
Arndís & Grétar
hahaha... já það er alveg spurning ;) ég ætla allavega að hafa það opið!
Sendu inn athugasemd