Veturinn er kominn....
Þegar það er farið að kólna og dimma finnst mér voða notarlegt að sitja uppí sófa, vinna í tölvunni, horfa á sjónvarpið eða lesa góða bók. Njóta þess að vera til. Vetrartíminn var aldrei minn uppáhalds tími en núna síðustu árin hef ég fundið fyrir einhverskonar ró sem kemur með vetrinum. Það er líka svo voða notarlegt að koma inn úr kuldanum inní heitt hús.
Ég veit ekki hvað veldur því, en um leið og veturinn er kominn hef ég oft mikla löngun til að lita á mér hárið dökkt. Á sumrin er það andstæðan því þá lita ég oftast á mér hárið ljóst.
Ég var rétt í þessu að koma úr litun og þegar ég fór að hugsa hvenær ég litaði hárið á mér síðast dökkt fattaði ég að það var nákvæmlega í sömu viku fyrir ári síðan. Algjör tilviljun.



1 athugasemdir:
Haha jaa mjog margir sem eru thannig..lita a ser harid dokkt a veturna en ljost a sumrin.. En tho thad se nu ekki vetur herna enntha tha vaeri eg stundum til i ad vera a Islandi i kuldanum:)
Love
Berglind
Sendu inn athugasemd