mús, Angelina og bjorgg.com
Ég fór loksins í dag að kaupa mér mús fyrir tölvuna mína. Ástæðan fyrir því var sú að ég var komin með brjálæða verki í hægri hendina, sérstaklga í vísifingurinn þar sem ég nota hann til að teikna á fartölvunni minni. Krakkarnir í bekknum mínum eru alltaf jafn hissa þegar þau sjá mig teikna með puttanum og skilja ekkert í því hvernig ég fer að þessu.
Ástæðan fyrir því afhverju ég var ekki búin að kaupa mér mús var sú að þegar ég keypti tölvuna var ég frekar fátæk og vildi bíða með að kaupa mér mús og svo gafst mér aldrei tími til þess, svo ég varð bara að redda mér og teikna með puttanum, það var fáranlega erfitt fyrst, en það vandist mjög fljótt. Eftir heilt ár er ég orðin býsna góð í þessu, en komin með króníska verki í hægri hendina... ekki gott.
Ég var næstum því búin að "drepa" músina mína í dag, því mér fannst fáranlega erfitt að venjast henni... en þetta er fljótt að koma og er ég og nýja músin mín orðnir ágætir vinir.
Ég hef doldið gaman af því að skoða myndbönd á YouTube og fann ég eitt frekar furðulegt í dag. Það er sem sagt ein stelpa sem líkist óhugnanlega mikið Angeliu Jolie, ég held að hún hljóti að hafa farið í lýtaaðgerðir til að líkjast henni... þetta er ekki eðlilegt. Þessi stúlka heitir Tiffany Claus og hér getiði séð myspace-ið hennar.
Ég var að setja portfolio mitt á netið: bjorgg.com, ef þið viljið skoða!



2 athugasemdir:
Pælið í því að fara í aðgerðir til þess að líta út eins og einhver annar. Sérstaklega að líta út eins og einhver frægur. Þessi stelpa hefur samt pottþétt bara gert það til þess að afla sér fjár. Það er fullt af fólki sem vinnur við þetta, þ.e. að vera celebrity look-alike. Ég las einmitt einu sinni grein við Posh spice look-alike, eða konu sem vann við það að vera alveg eins og Victoria Beckham. Hún sagði þetta vera mikla vinnu, auk þess sem að hún verður að sjálfsögðu alltaf að vera í nýjustu merkjunum, og með alveg eins klippingu og Victoria. En það er víst alveg nóg að gera fyrir hana, og hún á alveg sand af seðlum... :)
Vá ég fékk líka svona verk í hægri hendina eftir mikla vinnu á tölvunni...það gerðu svo allir grín af mér þegar ég mætti með mús! Gott að vita að ég er ekki ein og hallærisleg...enda hallærislegra að vera með verk en mús ;)
Kv Anna María
Sendu inn athugasemd