Skólinn á enda...
Þetta er rugl.. næsta miðvikudag er síðasti skóladagurinn minn, svo koma 2 vikur í verkefnaskil og Volia! Fyrsta árið búið!
Ég er búin að læra svo mikið þetta fyrsta ár í MMS, miklu meira en ég lærði nokkurn tíman í KTS (Köben) og er ég svo ánægð að hafa tekið þessa ákvörðun.
Næsta önn verður svo enn meira spennandi, við þurfum að ákveða hvað við viljum gera í lokaverkefninu og svo verður öll síðasta önnin notuð til að vinna í því.
Hér er eitt stutt verkefni sem ég gerði um daginn.. ekkert meistaraverk, en ótrúlega gaman að gera þetta.
Þeir sem eru að fara í próf, gangi ykkur vel!
Nýtt tónlistar æði: Adele



3 athugasemdir:
Þetta er töff, hvaða forrit notuðuð þið?
3D Max 2008 frá Autodesk... rosalega skemmtilegt að fikta í þessu forriti...
Töff töff.. þú veist hvers þú getur byrjað að hlakka til þegar skólinn er á enda!!
New York New York!!
Sendu inn athugasemd