28 apríl 2008

Myndavélar

Mér finnst alveg merkilegt hvað það er stutt síðan stafrænar myndavélar komu á almennan markað, rúm 10 ár síðan. Fyrst voru þær frekar dýrar og þess vegna gat ekki hver sem er keypt þær, en stærstu fyritækin voru ekki lengi að koma með betri og ódýrari myndavélar. Í dag eiga allir/flestir eina slíka, eða allavega hver fjölskylda. Fólk tekur í stað einnar myndar af hverju augnabliki um 100 myndir. Myndunum er svo hent inná tölvuna þar sem þær fá að dúsa.
Mér finnst svo leiðinlegt að horfa á merkingu mynda breytast svona ört, hvernig hver mynd verður minna metin. Áður fyrr vandaði maður sig mjög að reyna ná góðri mynd og svo var filman framkölluð og myndirnar settar í albúm.
Reyndar eru myndasíður komnar í stað albúma, sem fólk notar mjög mikið, en mér finnst það samt ekki það sama. Fólk hendir öllum myndum á þessar blessuðu myndasíður, sumir eru með um 10 myndir af sama augnablikinu í röð, sem er frekar boring.

Mér finnst reyndar mjög áhugavert hvernig þróun myndvinnslu er orðin flott. Maður getur nánast gert allt við myndirnar sínar. Breytt um liti, þurkað út hrukkur, bólur, bauga, bætt við hluti á myndir, breytt um bakgrunn.... ég get talið endarlaust.
Það hefur verið mikið æði að klóna sjálfan sig.. og ákvað ég að prufa að búa til eina slíka:



Mæli með þessari síðu: Photoshop Deisasters. Þar er samansafn af illa gerðum photoshop myndum fyrir auglýsingar og tímarit.

Tónlist: mæli með Adele og Duffy

3 athugasemdir:

Kristjana sagði...

breyttiru myndinni? hún var öðruvísi í gær. photoshopping..

stella sagði...

Gamla (ég) sá bara önnu að standa á höndum, þig í stólnum og Berglindi a gólfinu... var dáldið lengi að fatta..hehe

BJÖRG sagði...

haha... ja var með aðra..