Mariah Carey
Mér finnst rosalega skrítið að Mariah Carey sé í öðru sæti á Billboard listanum, rétt á eftir Bítlunum og að á eftir henni komi Elvis. Manni finnst hún ekki alveg passa inn í þennan hóp, en hún hefur jú staðið sig ágætlega vel gegnum árin.
Hún fer bara stundum svo mikið í mínar fínustu... Sérstaklega hvernig hún klæðir sig. Hún er alltaf með brjóstin hangandi út úr stuttu kjólunum og eitthvað svo glennuleg og ósmekkleg.
Ég man enn þegar ég keypti minn fyrsta disk með henni, Rainbow. Ég hlustaði allan daginn á lagið Heartbreaker og reyndi að syngja með... hehehe góðar minningar.
Mariah er góð söngkona en mér langaði til að deila með ykkur þessari flottu söngkonu, sem er án efa verri, hún tók lagið hennar í Búlgarísku Idoli.
Hún er orðin fræg eftir þessa frammistöðu.
Maður getur víst orðið frægur fyrir hvað sem er!



0 athugasemdir:
Sendu inn athugasemd