03 mars 2008

Hver mínúta telur

Það er sko nóg að gera hjá mér þessa daganna og get ég ekki beðið eftir því að komast til Köben og sötra svoldið á öl og rödvin. Reyndar verðum við Hildur í stífu prógrammi, en það verður samt allt skemmtunar tengt.

Skólinn gengur ágætlega þessa daganna, bara alveg týpíst að það er einhvern veginn öll verkefni á fullu ákkurat á þessum tímapunkti. Maður þarf að nota hverja mínútu rosalega vel. (eins og ég er að gera núna, blogga)

Á miðvikudag verða svokölluðu Beta skil á Blóðbanka auglýsingunni (sem sagt fyrstu skil). Við fengum rosalega gott veður síðasta laugardag og náðum að taka upp góðar myndir, en eigum alveg eftir að vinna í þeim, klippa og stilla og annað... svo við eigum eftir að búa í skólanum í dag og á morgun.

Náðum að plata nokkra til að leika í henni, amma hér að standa sig vel.

Þegar ég kem heim frá DK þá verða Anna, Styrmir og strákarnir flutt inn til okkar í stutt frí... sem þýðir að Berglind flytur inn í mitt herbergi í nokkrar vikur, sem þýðir að ég fæ ekki rúmið mitt útaf fyrir mig. Þannig ég ætla njóta þess að sofa í því ein þessa næstu tvo daga.
Það verður þröngt hjá okkur en ég hlakka ótrúlega mikið til að vakna og hitta litlu krúttin mín á hverjum degi, það er það besta við þetta allt. Þetta er án efa besta vekjaraklukka sem ég veit um.

Ég hendi kannski inn auglýsingunni hér í vikunni... þar að segja ef ég er nógu ánægð með hana. Krosslegg fingur mína, því ef hún "rokkar" þá verður hún sett í sjónvarpið!

Farin að kúra með rúminu mínu... ;)
Later Aligater

p.s. fyrir þá sem fíla ekki tónlistina sem spilar hér á blogginu þá er playlistinn hér neðalega hægramegin... getið bara sett á pause.

3 athugasemdir:

Nafnlaus sagði...

Falleg mynd af ömmu Gógó, ég er viss um að þetta komi mjög flott út.

Mér brá fyrst þegar tónlistin kom, kíkti á iTunes og ekkert þar í gangi, ég hélt að ég væri orðin biluð...ahhaha...

stella

bryndis sagði...

fila thessa tonlist i botn, er sko alltaf med thessa sidu opna hja mer thegar eg er heima ad chilla, thar sem eg er ekki med neina tonlist i nyju tolvunni minni. godur tonlistasmekkur;)

BJÖRG sagði...

hahahah!!!
datt það í hug að nokkrir mundi ekki fatta strax hvaðan hún kæmi... en gott að hún kemur að góðum notum ;)