New York New York
Ég fór á skemmtilega stelpumynd í kvöld, 27 dresses. Þetta er svona þessi týpíska mynd sem lætur mann langa mjög mikið í kærasta, sem lætur mann langa til að búa í stórborg, sem lætur mann langa til að eiga flotta íbúð, sem lætur mann langa til að eiga flott föt...... það er alltaf sama atburðarásin í svona myndum: myndin byrjar vel, svo koma nokkrar hindranir, hún hittir gaur, þau verða skotin, þau rífast, þau sættast.... þið vitið hvað ég meina.
Ég elska að horfi á mynd sem gerist í stórborg, sérstaklega New York. Það er svo mikið líf á götunum, alltaf eitthvað að gerast á hverju horni, alls konar fólk á ferðinni og litlar líkur að maður hitti á einhvern sem maður langar kannski ekki mikið til að hitta. Stórborgir eru eitthvað svo spennandi að sjá. Vonandi fær maður að prufa að búa í New York einhvern daginn.
Það er svo fyndið hvað ég verð alltaf óð í íbúðirnar sem oftast aðalpersónan á heima í. Ég get nefnt endalausar myndir sem ég hef gjörsamlega fylgst meira með íbúðinni heldur en því sem er að gerast í myndinni... og má þar nefna: The Brake Up, 27 Dresses, I told You so, Along Came Polly, The Devil wears Prada, Three to Tango, Honey, Friends (íbúð Monicu), Flash dance, Bridget Jones Diary.......(get talið endalaust) já mikið af þessum myndum eru stelpumyndir / chick flick / tussefilm, hvað sem þið kallið þær... en þið ættuð að prufa næst að skoða íbúðirnar í myndunum og sjá fyrir ykkur hvað er hægt að gera við þær.
Kannski hefði ég átt að fara í arkitektur.... hahaha! Hef allavega mikinn áhuga að pæla í þessum hlutum.



2 athugasemdir:
Já það er sko alveg nóg að gera. Held að fimmtudagskvöldið henti mér betur en sunnudagskvöldið! :) Við verðum bara í bandi!
skil þig með íbúðirnar, er alveg ástfangin af þeirri í the Break up!!
En já ég er eiginlega pottþétt laus 8. mars!! Verður geggjað gaman að sjá þig!
Sendu inn athugasemd